Liðið verður ekki veikara
Guðmundur Þórður Guðmundsson, þjálfari þýska handknattleiksliðsins Rhein-Neckar Löwen, segist alls ekki ætla að leggja árar í bát þótt forsendur hafi breyst nokkuð hjá liðinu frá því að hann tók við þjálfun þess fyrir rúmum tveimur árum. Ljóst sé að draga verði saman í útgjöldum á næstunni en það eigi hinsvegar að koma eins lítið niður á liðinu og kostur er. Guðmundur segist sjá fram á spennandi tíma og hann hlakki til þess að takast á við framtíðina þrátt fyrir breyttar forsendur.
Danski auðmaðurinn Jesper Nielsen, sem átt hefur rúmlega helming í félaginu, hefur selt sinn hlut. Guðmundur segir að þar með hafi verið ljóst að Pólverjarnir, Krzysztof Lijewski og Karol Bielecki, hyrfu á brott en Nielsen hefur fjármgnað laun þeirra að verulegu leyti. Einnig sé ljóst að þýski landsliðsmaðurinn Michael Müller er á förum til Wetzlar og eins fái Róbert Gunnarsson ekki endurnýjaðan samning.
„Við fáum hinsvegar í staðinn frábæra leikmenn. Með þessum viðbótum og einhverjum fleirum þá tel ég að liðið verði alls ekki veikara en það hefur verið og vel samkeppnishæft,“ segir Guðmundur Þórður.
Nánar er rætt við Guðmund í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.






