Mæta Þjóðverjum í Mannheim í mars
Guðmundur Þórður Guðmundsson stýrir íslenska landsliðinu gegn Þjóðverjum í vináttulandsleik í Mannheim í næsta mánuði. Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Íslenska landsliðið í handknattleik mætir Þýskalandi í vináttulandsleik í Mannheim í Þýskalandi 14. mars nk. Þetta kemur fram í tilkynningu frá þýska handknattleikssambandinu.
Leikurinn verður fyrsti liðurinn í undirbúningi íslenska landsliðsins leikina í undankeppni Ólympíuleikana sem fram fara í byrjun apríl í Króatíu.
Ekki er ljóst á þessari stundu hvaða leikmenn Guðmundur Þórður Guðmundsson getur valið fyrir leikinn þar sem ekki er um alþjóðlegan leikdag að ræða. Heimildir mbl.is herma að stefnt sé að því að landsliðshópurinn komi saman til æfinga, þriðjudaginn 13. mars og þá væntanlega í Mannheim eða næsta nágrenni. Landsleikurinn verður kvöldið eftir í SAP-Aren í Mannheim, heimavelli Rhein-Neckar Löwen, liðsins sem Guðmundur Þórður þjálfar og Róbert Gunnarsson, landsliðsmaður leikur með.






