Rymanov efstur á blaði

Vladimir Maximov hætti fyrr skömmu eftir áratuga starf sem landsliðsþjálfari Rússa í handknattleik karla. Alexander ... stækka

Vladimir Maximov hætti fyrr skömmu eftir áratuga starf sem landsliðsþjálfari Rússa í handknattleik karla. Alexander Rymanov þykir líklegastur til að taka við starfinu. Reuters

Alexander Rymanov mun vera efstur á lista rússneska handknattleikssambandsins yfir þá þjálfara sem það hefur augastað á til að taka við starfi landsliðsþjálfara karla af Vladimir Maximov sem sagði starfi sínu lausu eftir Evrópumeistaramótið í Serbíu fyrir skömmu.

Rymanov gjörþekkir rússneska handknattleik, jafnt sem leikmaður og þjálfari. Hann var ólympíumeistari sem leikmaður 1988 og heimsmeistari 1982 og 1989 auk þess að vera þrautreyndur þjálfari. Hann hefur m.a. þjálfað hjá Rheinhausen, Tusem Essen, GWD Minden, Friesenheim og HSG Gensungen/Felsberg í Þýskalandi og Limburg Lions í Hollandi.

Stjórn rússneska handknattleikssambandsins stefnir að því að ráða nýjan þjálfara fyrir lok næsta mánaðar. Boris Aleshin, formaður sambandsins, staðfestir í samtali við R-sport að Rymanov komi sterklega til álita sem næsti landsliðsþjálfari.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is