Selfoss náði jafntefli gegn ÍR
Tveir leikir fóru fram í 1. deild karla í handknattleik í kvöld. Í Austurbergi gerði topplið ÍR jafntefli við Selfoss, 28:28, og Stjarnan burstaði Fjölni, 29:19.
Guðni Kristinsson var markahæstur í liði ÍR-inga með 7 mörk og Sigurður Magnússon skoraði 4 en hjá Selfyssingum voru þeir Atli Kristinsson og Matthías Halldórsson með 6 mörk hvor. Staðan í hálfleik var jöfn, 13:13.
Stjarnan átti ekki í vandræðum með Fjölnismenn á heimavelli sínum í Mýrinni. Lokatölur urðu, 29:19, en staðan í hálfleik var 14:7. Elvar Örn Jónsson skoraði 6 mörk fyrir Stjörnuna og Eyþór Magnússon 5 en hjá Fjölni var Aron Guðmundsson atkvæðamestur með 7 mörk.
ÍR er með 21 stig á toppnum, Stjarnan 16, Víkingur 15, ÍBV 14, Selfoss 10 og Fjölnir ekkert stig. Þrettándu umferð lýkur á morgun með leik ÍBV og Víkings.






