Íþróttir
|
Handbolti
| Morgunblaðið
| 10.2.2012
| 7:15
Vill vera eins og Ferguson
Talant Dujshebaev þjálfari spænska handboltaliðsins Atlético Madrid, sem áður hét Ciudad Real, segist ekki hafa uppi nein áform um að yfirgefa liðið en hann hefur verið orðaður við þjálfarastöðuna hjá þýska liðinu Hamburg og landsliði Katar upp á síðkastið.
„Það eina sem ég vil segja er að mín ósk er að vera áfram hjá Atlético og vonandi get ég gert það sama og Ferguson, það er að starfa hjá sama félaginu í meira en 20 ár,“ sagði Dujshebaev í viðtali við spænska blaðið Marca. Sá Ferguson sem Dujshebaev vísar til er að sjálfsögðu Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






