HK vann Stjörnuna - Fram aftur á toppinn
Það var ekki margt sem benti til sigurs HK í hálfleik þegar liðin áttust við í N1-deild kvenna í handknattleik í dag. Staðan var 15:20 Stjörnunni í vil en HK sneri þá taflinu við og skoraði 17 mörk gegn aðeins 10 mörkum Stjörnunnar í síðari hálfleik og hafði þar með sigur, 32:30.
Markahæst í liði HK var Elísa Ósk Viðarsdóttir með sjö mörk en Heiðrún Björk Helgadóttir kom næst með fimm. Hjá Stjörnunni voru það Sólveig Lára Kjærnested og Hanna Guðrún Stefánsdóttir sem skoruðu meira en helming marka Stjörnunnar eða átta mörk hvor.
Fram vann svo Hauka 28:24 en staðan í hálfleik var 16:9 en munurinn á liðunum í lokin var minni en búist hafði verið við fyrir leikinn. Fram fór þar með á topp deildarinnar með jafn mörg stig og Valur en betri árangur innbyrðis.
Markahæst hjá Fram var Stella Sigurðardóttir með sjö en Elísabet Gunnarsdóttir kom næst með fimm mörk. Hjá Haukum var Marija Gedroit langmarkahæst með níu. Ásta Björk Arnarsdóttir kom næst með fimm mörk.
Annar sigur KA/Þórs í röð
KA/Þór vann annan leik sinn í röð þegar liðið var í heimsókn hjá FH í Hafnarfirði. Úrslitin voru 25:21 en staðan í hálfleik var 12:8 norðanstúlkum í vil. Liðið fylgdi þar með eftir góðum sigri á HK í síðustu umferð. KA/Þór skaust með sigrinum upp fyrir Gróttu í 7. sæti deildarinnar en FH er á botninum með þrjú stig.
Ásdís Sigurðardóttir var langmarkahæst í liði KA/Þórs með 12 mörk en Martha Hermannsdóttir kom næst með fimm. Hjá FH var það Indiana Nanna Jóhannsdóttir sem skoraði sex mörk en Kristrún Steinþórsdóttir kom næst með fimm mörk.






