Rakel Dögg til Stjörnunnar

Rakel Dögg Bragadóttir til liðs við Stjörnuna. stækka

Rakel Dögg Bragadóttir til liðs við Stjörnuna. mbl.is/Ernir

Rakel Dögg Bragadóttir, landsliðsfyrirliði Íslands í handknattleik, hefur ákveðið að ganga til liðs við Stjörnuna í N1-deildinni. Hún er uppalinn Stjörnumaður og spilaði með liðinu allt þangað til hún gerðist atvinnumaður í Danmörku og síðar Noregi. Síðast lék hún með norska liðinu Levanger.

Hún sleit krossband í hné rétt fyrir heimsmeistaramótið í Brasilíu og gat því ekki tekið þátt í mótinu eins og segir í tilkynningu frá Stjörnunni.

Rakel mun spila með liðnu á næstu leiktíð þegar hún hefur náð sér góðri af meiðslunum. Það þarf ekki að fjölyrða um hversu mikill hvalreki Rakel er fyrir Stjörnuna en í tilkynningu frá handknattleiksdeild félagsins segir meðal annars: Rakel Dögg var kosin íþróttamaður Garðabæjar og Stjörnunnar árið 2007 og kjörin handboltakona ársins af HSÍ sama ár. Hún hefur unnið til fjölmargra titla með Stjörnunni í gegnum árin, en hún varð Íslandsmeistari með Stjörnunni 2007 og 2008 og deildarmeistari 2005 og 2008.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is