Valur hafði sigur gegn Gróttu

Hrafnhildur Skúladóttir var markahæst hjá Val gegn Gróttu í dag. stækka

Hrafnhildur Skúladóttir var markahæst hjá Val gegn Gróttu í dag. Eggert Jóhannesson

Valur hafði sigur gegn Gróttu, 27:22, í N1-deild kvenna í handknattleik í dag. Staðan í hálfleik var 17:11 og sá munur hélst meira og minna allt til loka. Markahæst hjá Val var Hrafnhildur Ósk Skúladóttir með átta en Anna Úrsúla Guðmundsdóttir og Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir komu næstar með fjögur mörk hvor.

Hjá Gróttu voru Laufey Ásta Guðmundsdóttir, Sunna María Einarsdóttir og Elín Helga Jónsdóttir allar með fjögur mörk.

Valur náði þar með tveggja stiga forskoti á Fram sem getur þó með sigri á Haukum síðar í dag jafnað Hlíðarendastúlkur. Klukkan 16 eigast einnig við FH og KA/Þór í Hafnarfirði og HK og Stjarnan í Kópavogi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is