Við getum farið alla leið

Ólafur Bjarki Ragnarsson, HK. stækka

Ólafur Bjarki Ragnarsson, HK. mbl.is

Ólafur Bjarki Ragnarsson, leikstjórnandi úr HK, er að mati Morgunblaðsins leikmaður 14. umferðar úrvalsdeildar karla í handknattleik, N1-deildarinnar. Ólafur Bjarki fór á kostum og skoraði m.a. 10 mörk, þegar HK lagði Val í Digranesi í fyrrakvöld, 28:26, í hörkuleik. Hann fékk sitt fyrsta stóra tækifæri með íslenska landsliðinu á EM í Serbíu þegar hann tók þátt í nokkrum leikja liðsins í mótinu.

„Ég öðlaðist afar góða reynslu af því að fara á mitt fyrsta stórmót og hef bara komið nokkuð sterkur til leiks með HK í tveimur síðustu leikjum eftir EM,“ sagði Ólafur Bjarki þegar Morgunblaðið truflaði hann með símtali rétt eftir hádegið í gær þar sem hann sat á skólabekk.

HK-liðið situr í þriðja sæti N1-deildarinnar með 19 stig, er aðeins einu stigi á eftir toppliði Hauka, þegar sjö umferðir eru eftir. Þá er Kópavogsliðið komið í undanúrslit í Eimskipsbikarnum og mætir Fram á mánudagskvöldið í leik um keppnisrétt í úrslitaleiknum, annaðhvort við FH eða Hauka.

„Við erum með fínan leikmannahóp hjá HK og höfum alla möguleika á að komast mjög langt í báðum mótum. Okkar markmið er að vera í einu af fjórum efstu sætunum í vor og komast þar með í úrslitakeppnina um Íslandsmeistaratitilinn. Og auðvitað ætlum við að komast í úrslitin í bikarnum.

Lengra viðtal við Ólaf Bjarka er í íþróttablaði Morgunblaðsins sem kom út í morgun. Þar er einnig að finna lista yfir markahæstu leikmenn N1-deildarinnar og hvaða markverðir hafa varið flest skot til þessa þegar tveir þriðju hlutar deildarkeppninnar eru að baki.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is