Víkingar gerðu góða ferð til Eyja

Magnús Stefánsson skoraði þrjú mörk fyrir ÍBV en það dugði ekki til gegn Víkingum stækka

Magnús Stefánsson skoraði þrjú mörk fyrir ÍBV en það dugði ekki til gegn Víkingum Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Víkingar unnu ÍBV í 1. deild karla í handknattleik með einu marki, 22:21, og það í Vestmannaeyjum. Sami munur var á liðunum í hálfleik, 8:9, og Víkingar héldu uppteknum hætti í þeim síðari.

Markahæstur hjá gestunum var Arnar Theodórsson með sex og þeir Gestur Jónsson og Hjálmar Þór Arnarsson skoruðu fjögur hvor. Hjá heimamönnum var það Davíð Þór Óskarsson sem skoraði mest eða fimm mörk. Sigurður Bragason kom næstur með fjögur og Magnús Stefánsson skoraði þrjú.

Víkingur komst með sigrinum upp fyrir Stjörnuna og í 2. sæti deildarinnar með 17 stig. Stjarnan er með 16 í því þriðja en ÍBV í 4. sæti með 14 stig. ÍR er á toppi deildarinnar með 21 en Selfoss og Fjölnir reka lestina, síðarnefnda liðið án stiga en Selfoss er með 10 stig.  

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is