Góður sigur hjá Þóri og félögum

Þórir Ólafsson. stækka

Þórir Ólafsson. heimasíða/Vive Tragi Kielce

Þórir Ólafsson og samherjar hans í pólska liðinu Vive Kielce unnu í gærkvöldi ungverska liðið Veszprém, 24:21, í Meistaradeild Evrópu í handknattleik en leikið var í Ungverjalandi. Með sigrinum glæddust vonir leikmanna pólska liðsins um að komast í 16 liða úrslit keppninnar.

Þórir skoraði tvö af mörkum Kielce í leiknum. Leikmenn Veszprém voru marki yfir í hálfleik, 13:12, en frábær varnarleikur og framúrskarandi leikur Danans Marcus Cleverly í markinu lögðu grunninn að þriggja marka sigri.

Atlético Madrid vann Guðmundur Árna Ólafsson og samherja í Bjerringbro/Silkeborg, 31:27, í sama riðli Meistaradeildarinnar í gær. Leikurinn fór fram á Spáni og dæmdu þeir Jónas Elíasson og Ingvar Guðjónsson leikinn.

Atlético Madrid er efst í riðlinum með 14 stig að loknum átta leikjum. Veszprém er með 10 stig og Vive Kielce átta. Medvedi og Füchse Berlin eru með sjö stig hvort og mætast í dag. Bjerringbro/Silkeborg rekur lestina án stiga.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is