Haukar í bikarúrslit
Baldvin Þorsteinsson, FH-ingur, og Gylfi Gylfason, úr Haukum, eigast við í leika Hauka og FH í deildinni á síðasta fimmtudag. Ómar Óskarsson
Haukar tryggðu sér sæti í úrslitum Eimskipsbikars karla í handknattleik þegar þeir lögðu granna sína í FH, 22:14, í Schenkerhöllinni á Ásvöllum í Hafnarfirði í dag. Haukar mæta annaðhvort Fram eða HK í úrslitum en þau lið eigast við annað kvöld í Digranesi.
Staðan var jöfn í hálfleik, 10:10. Haukar skelltu hinsvegar í lás í síðari hálfleik með frábærum varnarleik auk þess sem landsliðsmarkvörðurinn Aron Rafn Eðvarðsson fór hamförum í markinu og varði 15 skot. FH voru algjörlega ráðalausir gegn varnarleik og markvörslu Hauka að þessu sinni.
Markahæstur Hauka var Stefán Rafn með sex mörk og Gylfi skoraði fimm.
Ólafur og Ari Magnús skoruðu þrjú mörk hvor fyrir FH.
Fylgst var með leiknum í beinni textalýsingu á mbl.is.
Lið Hauka: Aron Rafn Eðvarðsson, Birkir Ívar Guðmundsson - Tjörvi Þorgeirsson, Freyr Brynjarsson, Einar Pétur Pétursson, Þórður Rafn Guðmunsson, Brynjólfur Snær Brynjólfsson, Jónatan Ingi Jónsson, Nemanja Malovic, Sveinn Þorgeirsson, Heimir Óli Heimisson, Stefán Rafn Sigurmannsson, Gylfi Gylfason, Matthías Árni Ingimarsson.
Lið FH: Pálmar Pétursson, Daníel Andrésson - Sigurður Ágústsson, Andri Berg Haraldsson, Baldvin Þorsteinsson, Hjalti Pálmason, Ólafur Gústafsson, Magnús Óli Magnússon, Örn Ingi Bjarkason, Þorkell Magnússon, Ari Magnús Þorgeirsson, Ísak Rafnsson, Ragnar Jóhannsson, Halldór Guðjónsson, Atli Rúnar Steinþórsson.
58. Haukar eru tveimur mönnum færri en sigur þeirra er ekki í hættu. Staðan er 20:14.
54. Haukar taka leikhlé eftir að FH hefur skorað tvö mörk í röð. Staðan er 18:13 fyrir Hauka.
50. Tíu mínútur til leiksloka og FH hefur aðeins skorað eitt mark í síðari hálfleik. Nýbakaður landsliðsmarkvörður, Aron Rafn, fer hamförum í marki Hauka og hefur varið 11 skot í síðari hálfleik. FH-ingar vita ekki sitt rjúkandi ráð. Staðan er 17:11 fyrir Hauka sem eru komnir með annan fótinn inn í Laugardalshöllina í úrslitaleik bikarkeppninnar.
45. Hvorki gengur né rekur hjá FH-ingum sem nú eru fjórum mörkum undir auk þess sem Haukar eru í sókn.
42.50. Andri Berg var að skora fyrsta mark FH í síðari hálfleik með þrumuskoti utan punktalínu. Staðan er 13:11 fyrir Hauka.
42. FH-liðið hefur enn ekki skorað mark í síðari hálfleik og þjálfarar liðsins bregða á það ráð að taka leikhlé. Staðan er 13:10 og segja má að sóknarleikur beggja liða hafi verið í hálfgerðu skötulíki það sem af er síðari hálfleik.
38. Gylfi var að koma Haukum í 13:10. FH hefur enn ekki skorað mark í síðari hálfleik. Þeir voru að missa Þorkel af leikvelli eftir að hafa nýverið endurheimt sjötta sóknarmanninn. Hauka vantar einnig einn mann í lið sitt.
34. Stefán Rafn skorar fyrsta mark síðari hálfleiks og kemur Haukum einu marki yfir, 11:10. Áður höfðu tvær sóknir hjá hvoru liði runnið út í sandinn án marka.
30. Flautað hefur verið til loka fyrri hálfleik. Staðan er jöfn, 10:10. Sama staða var í hálfleik í leik liðanna í deildinni á sama stað á fimmtudagskvöldið. Þá var FH-liðið sterkara í síðari hálfleik.
Gylfi og Stefán Rafn hafa skorað þrjú mörk hvor fyrir Hauka. Birkir Ívar hefur varið fjögur skot í markinu. Hjá FH eru Hjalti, Ólafur, Örn Ingi og Sigurður markahæstir með tvö mörk hver. Daníel hefur farið á kostum í marki FH og varið 12 skot.
29. FH hefur jafnað metin, 10:10, eftir að hafa skorað tvö mörk í röð. Birki Ívari, markverði Hauka, var vísað af leikvelli svo Haukar verða manni færri síðustu mínútu fyrri hálfleik og á upphafsmínútu síðari hálfleik.
28. Daníel varði vítakast frá Stefáni Rafni Haukamanni. Boltinn kom við höfuð Daníels sem vildi frá rautt spjald. Eftir að hafa ráðið ráðum sínum ákveða dómararnir að sýna Stefáni ekki rauða spjaldið.
25. Munurinn er óbreyttur, tvö mörk 9:7. Sóknarleikur FH hefur aðeins liðkast eftir leikhléið áðan.
20. FH-ingar taka leikhlé enda hefur sóknarleikur þeirra ekki gengið sem skyldi gegn framliggjandi og mjög ákveðinni vörn Hauka. Daníel markvörður hefur haldið FH inni í leiknum fram til þessa, hann hefur varið sjö skot.
15. Haukar komnir marki yfir en eru aftur manni færri eftir að Stefáni Rafni var vísað af leikvelli fyrir brot á Ólafi Gústafssyni. Birkir varði skot frá Ólafi í framhaldinu og Haukar hafa hafið sókn. Það neistar milli leikmanna hér og dómararnir eiga í fullt í fangi með að halda uppi stjórn. Vill til að Kjartan K. Steinback er eftirlitsmaður. Staðan er 5:4, fyrir Hauka.
12. FH hefur skorað tvö mörk í röð og er komið yfir, 4:3. Haukar eru auk þess manni færri eftir að Frey var vísað af leikvelli rétt áðan.
10. Staðan er 3:2, fyrir Hauka en Sveinn var að koma þeim yfir með hörkuskoti eftir að Birkir hafði varið vel frá Erni Inga hinum megin vallarins skömmu áður.
5. Ólafur Gústafsson kom FH yfir eftir tæpar tvær mínútur en Stefán Rafn jafnaði metin fyrir FH skömmu síðar. Mikil barátta er í leiknum eins og eðlilegt á milli þessara liða. Marverðirnir Daníel Freyr hjá FH og Birkir Ívar hjá Haukum eru vel með á nótunum á upphafsmínútunum.
0. Fáeinar mínútur þar til leikurinn hefst og íþróttahúsið er ekki nema hálfsetið sem er óvenjulegt þegar þessi lið eigast við.
Dómarar leiksins eru Gísli H. Jóhannsson og Hafsteinn Ingibergsson.
Sigurliðið mætir annaðhvort HK eða Fram í úrslitaleik í Laugardalshöllinni laugardaginn 25. febrúar. HK og Fram leiða saman hesta sína í Digranesi annað kvöld.






