Lærisveinar Aðalsteins unnu toppliðið
Aðalsteinn Eyjólfsson stýrði sínum mönnum í Eisenach til sigur á toppliði GWD Minden í gærkvöldi. Ljósmynd/Th. Levknecht
Eisenach, sem Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar, vann í gærkvöldi topplið GWD Minden, 32:27, á heimavelli í þýsku 2. deildinni í handknattleik. Eisenach fluttist þar með upp í 9. sæti deildarinnar með 21 stig að loknum 20 leikjum og er átta stigum á eftir Minden sem enn situr í toppsætinu.
Aðalsteinn skrifaði undir nýjan samning við Eisenach á föstudaginn um að þjálfa liðið a.m.k. í eitt ár til viðbótar og virðist það hafa lagst vel í hann og leikmenn liðsins.
Arnór Þór Gunnarsson skoraði níu mörk fyrir TV Bittenfeld þegar liðið tapaði, 29:26, fyrir Bad Schwartau. Árni Þór Sigtryggsson skoraði ekki mark að þessu sinni fyrir Bittenfeld sem er í 12. sæti með 20 stig.






