Löwen í kröppum dansi í Eskilstuna
Þýska handknattleiksliðið Rhein-Neckar Löwen lenti í kröppum dansi gegn sænska liðinu Guif í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum EHF-keppninnar í handknattleik í gærkvöldi. Bjarte Myrhol tryggði Löwen eins marks sigur fáeinum sekúndum fyrir leikslok, 35:34, en Svíarnir voru tveimur mörkum yfir, 34:32, þegar fjórar mínútur voru eftir.
Guif, sem þjálfað er af Kristjáni Andréssyni, var tveimur mörkum yfir í hálfleik, 19:17. Bróðir hans, Haukur, skoraði tvö mörk í leiknum, þar á meðal síðasta mark liðsins.
Róbert Gunnarsson skoraði eitt mark fyrir Löwen en sem kunnugt er þjálfar Guðmundur Þórður Guðmundsson liðið. Mikið er um meiðsli herbúðum Löwen um þessar mundir og hafði Guðmundur aðeins úr níu útispilurum að velja í leiknum.
Björgvin Páll Gústavsson þótti eiga góðan leik þegar Magdeburg vann Nexe Nasice frá Króatíu, 33:31, í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum EHF-keppninnar. Leikið var í Magdeburg.
Ólafur Guðmundsson og Gísli Kristjánsson og samherjar í Nordsjælland steinlágu fyrir Tatran Presov frá Slóvakíu á útivelli í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum EHF-keppninnar. Leikið var í SLóvakíu.
Elías Már Halldórsson og hans samherjar í norska liðinu OIF Arendal fengu einnig stóran skell, 40:27, fyrir Gummersbach í Þýskalandi í fyrrii leiknum í 16-liða úrslitum Evrópukeppni bikarhafa.






