Íþróttir
|
Handbolti
| mbl
| 12.2.2012
| 14:47
| Uppfært
18:30
Mikilvægur sigur hjá Rúnari og samherjum
Rúnar Kárason og samherjar hans í Bergischer HC unnu í gær mikilvægan sigur í botnbaráttu í þýsku 1. deildinni í handknattleik þegar þeir lögðu Burgdorf, 35:31, á útivelli.
Rúnar skoraði fjögur mörk í leiknum en Bergischer var yfir í leiknum frá upphafi til loka leiksins.
Vignir Svavarsson átti ljómandi góðan leik fyrir Burgdorf og skoraði sjö mörk. Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði einu mark færra og Hannes Jón Jónsson, fyrirliði Burgdorf, skoraði eitt mark.
Bergischer er í 15. sæti deildarinnar með 12 stig eftir 19 leiki. Burgdorf er í sætinu fyrir ofan með tveimur stigum meira.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






