Íþróttir
|
Handbolti
| mbl
| 12.2.2012
| 8:55
| Uppfært
18:06
Þórey og Rut fóru áfram
Team Tvis Holstebro komst í gær í 8 liða úrslit EHF-keppni kvenna í handknattleik með sigri á Team Esbjerg, 27:24, á heimavelli í síðari viðureign liðanna. Esbjerg vann fyrri viðureignina með einu marki.
Landsliðskonurnar Þórey Rósa Stefánsdóttir og Rut Jónsdóttir léku báða með Team Tvis Hostebro í leiknum.
Leikurinn í gær var spennandi því aðeins hálfri annarri mínútu fyrir leikslok var aðeins ein marks munur á liðunum, 25:24, eftir að heimaliðið hafði verið með fimm marka forskot í hálfleik, 16:11.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






