AG-menn ekki lausir í leikinn í Mannheim

Guðjón Valur Sigurðsson missir líklega af leiknum við Þjóðverja. stækka

Guðjón Valur Sigurðsson missir líklega af leiknum við Þjóðverja. mbl.is/Golli

Útlit er fyrir að íslensku landsliðsmennirnir fjórir sem leika með danska meistaraliðinu AG Köbenhavn leiki ekki með íslenska landsliðinu í handknattleik karla þegar það mætir Þjóðverjum í vináttulandsleik í Mannheim 14. mars. Ekki er um alþjóðlegan leikdag og ræða og félaginu ber því ekki skylda til þess að leyfa leikmönnunum að fara í leikinn. Auk þess á AG að mæta Nordsjælland í dönsku úrvalsdeildinni sama kvöld.

Leikmennirnir sem um er að ræða eru Arnór Atlason, Guðjón Valur Sigurðsson, Ólafur Stefánsson og Snorri Steinn Guðjónsson. Auk þess leikur Ólafur Guðmundsson með Nordsjælland sem á að mæta AG umrætt kvöld.

Eftir því sem Morgunblaðið kemst næst hefur AG neitað HSÍ um að fá leikmennina fjóra í landsleikinn. Forráðamenn AG hafa ekki í hyggju að sækja um frestun á fyrrgreindum leik við Nordsjælland þar sem liðið verður í mjög þéttri leikjadagskrá bæði í dönsku úrvalsdeildinni og í Meistaradeild Evrópu á þessum tíma.

HSÍ mun ekkert geta gert í málinu þar sem ekki er um alþjóðlegan leikdag að ræða. Þar með er útlit fyrir að a.m.k. fyrrgreindir fimm leikmenn verði ekki í landsliðshópnum sem leikur í Mannheim.

Ekkert verður hinsvegar leikið í þýsku deildinni í kringum umræddan leikdag í mars og því ættu íslenskir handknattleiksmenn sem leika í þýsku 1. og 2. deildinni að eiga möguleika á að taka þátt í leiknum við Þjóðverja í Mannheim 14. mars. Þá hefur 18. umferð N1-deildar karla verið flýtt til 12. mars og þar eiga leikmenn sem spila hér á landi og valdir verða í hópinn að geta gefið kost á sér. iben@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is