Heim í heiðardalinn

Rakel Dögg Bragadóttir. stækka

Rakel Dögg Bragadóttir. mbl.is/Ernir

„Það var alls ekkert sjálfgefið að ég færi aftur í Stjörnuna þótt það sé mitt uppeldisfélag. Eftir nokkra umhugsun ákvað ég að ganga til liðs við Stjörnuna. Mér líst vel á hugmyndir þær sem þar eru uppi um að koma liðinu aftur í baráttu um titla,“ segir Rakel Dögg Bragadóttir, landsliðskona í handknattleik, sem um helgina tilkynnti að hún ætlaði að ganga til liðs við Stjörnuna fyrir næsta keppnistímabil eftir fjögur ár í atvinnumennsku í Danmörku og í Þýskalandi.

„Það höfðu nokkur félög samband við mig og þar á meðal Valur sem mér leist vel á enda flott félag með góðan leikmannahóp og fínan þjálfara. Ég veit að þar hefði ég komist í topplið. En eftir nokkra umhugsun ákvað ég að veðja á Stjörnuna og taka þar að minnsta kosti eitt ár en það var ekkert einfalt að gera upp á milli Stjörnunnar og Vals, það kitlaði mig aðeins að ganga til liðs við Vals,“ segir Rakel Dögg sem heldur til Noregs í dag til þess að ganga frá sínum málum hjá úrvalsdeildarliðinu Levanger.

Rakel Dögg sleit krossband í hné nokkrum dögum áður en íslenska landsliðið í handknattleik fór til Brasilíu undir lok síðasta árs til þátttöku á heimsmeistaramótinu. Síðan hefur hún eðlilega ekkert leikið handknattleik. Samningur hennar við Levanger rennur út í vor og eftir að krossbandið slitnaði var ljóst að hún spilað ekki með liðinu á yfirstandandi leiktíð sem lýkur í maí.

Nánar er rætt við Rakel í 8 síðna íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is