Ólafur lék vel í öruggum sigri AG
Danska meistaraliðið AG frá Kaupmannahöfn vann afar öruggan sigur á Partizan Belgrad í Meistaradeildinni í handknattleik í gærkvöldi, 29:23. Sigurinn var enn öruggari en lokatölurnar gefa e.t.v. til kynna þar sem það munaði 13 mörkum á liðunum þegar rúmar tíu mínútur voru til leiksloka. Leikið var í Bröndby-höllinni í Kaupmannahöfn.
Ólafur Stefánsson lék afar vel í liði AG og skoraði fimm mörk en hann virðist vera að ná sér á strik eftir þrálát hnémeiðsli síðustu mánuðina. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði fjögur mörk fyrir AG og Arnór Atlason einnig.
Snorri Steinn Guðjónsson, sem hefur átt í meiðslum upp á síðkastið, lék nær allan leikinn fyrir AG. Hann skoraði tvö mörk og átti margar stoðsendingar.
AG hefur þar með 12 stig að loknum átta umferðum í D-riðli og er í öðru sæti. Kiel, undir stjórn Alfreðs Gíslasonar er stigi á undan en þessi lið mætast í lokaumferð riðlakeppninnar í Kaupmannahöfn um aðra helgi.
Spænska liði Real Ademar er í þriðja sæti riðilsins eftir eins marks sigur á frönsku meisturunum í Montpellier, 29:28. iben@mbl.is






