Íþróttir
|
Handbolti
| mbl
| 15.2.2012
| 14:18
Daníel: Hefur gengið vonum framar
Daníel Freyr Andrésson, úr FH, var valinn besti markvörður umferða 8 - 14 í N1-deild karla í handknattleik en úrvalsliðið var tilkynnt í hádeginu.
„Þetta hefur gengið bara mjög vel og vonum framar. Það er bara mjög skemmtilegt,“ sagði Daníel um frammistöðuna á tímabilinu þegar mbl.is tók hann tali í dag en Bergsveinn Bergsveinsson, fyrrum landsliðsmarkvörður, er lærifaðir Daníels í markvörslunni.
Daníel sagðist vonast til þess að FH-ingar verði fljótir að gleyma vonbrigðunum í bikarkeppninni en FH féll úr keppni í undanúrslitum á dögunum fyrir grönnum sínum í Haukum. Daníel vonast eftir því að FH-ingar muni eflast þegar á líður tímabilið og verði jafn sterkir í úrslitakeppninni og þeir voru í fyrra.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






