Lærisveinar Dags áfram í öðru sæti
Füchse Berlin, liðið sem Dagur Sigurðsson þjálfar í þýsku 1. deildinni í handknattleik, heldur sínu striki í öðru sæti deildarinnar. Í kvöld vann Füchse granna sína í Magdeburg, 24:20, í Max Schmeling-íþróttahöllinni í Berlín.
Füchse hafði yfirhöndina í leiknum frá upphafi til enda og var m.a. fjórum mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 13:9.
Alexander Petersson lék ekki með Berlínarliðinu þar sem hann er enn fjarri góðu gamni vegna meiðsla.
Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður, sat allan leikinn á varamannabekk Magdeburgarliðsins.
Füchse hefur 33 stig að loknum 20 leikjum og er fimm stigum á eftir Kiel sem trónir á toppnum. Kiel er að leika þessa stundina við Bergischer HC í Wuppertal og mun með sigri auka forskot sitt á toppnum í sjö stig á nýjan leik.






