Rúnar markahæstur í tapleik

Rúnar Kárason. stækka

Rúnar Kárason. Árni Sæberg

Mjög góður leikur Rúnars Kárasonar dugði Bergischer HC skammt í kvöld þegar liðið fékk Kiel í heimsókn til Wuppertal í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Kiel vann með 13 marka mun, 34:21, og hefur þar með unnið fyrstu 20 leiki sína í deildinni á þessari leiktíð.

Rúnar var markahæstur hjá Bergischer HC með sex mörk en liðið er í fjórða neðsta sæti deildarinnar.

Aron Pálmarsson lék með Kiel á nýjan leik eftir fjarveru vegna veikinda. Hann skoraði eitt mark í kvöld. Momir Ilic var markahæstur hjá Kiel með 7 mörk, fimm úr vítakasti. Christian Sprenger, Filip Jicha og Marcus Ahlm skoruðu fimm mörk hver.

Rhein-Neckar Löwen undir stjórn Guðmundar Þórðar Guðmundssonar vann öruggan sigur á Hannover-Burgdorf á heimavelli, 35:27, og er þar með áfram í fjórða sæti deildarinnar. Íslendingar komu mikið við sögu í leiknum. Róbert Gunnarsson skoraði fimm af mörkum Löwen. Hannes Jón Jónsson og Vignir Svavarsson skoruðu fimm mörk hvor fyrir Burgdorf og Ásgeir Örn Hallgrímsson fjögur.

Þýski landsliðsmaðurinn Uwe Gensheimer fór einu sinni sem oftar á kostum í liði Löwen. Hann skoraði 14 mörk í kvöld, aðeins tvö þeirra úr vítakasti.

Þá vann Flensburg liðsmenn Göppingen, 32:28, á heimavelli og Gummersbach lagði Melsungen, 32:29.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is