Snorri Steinn framlengir við AG
Snorri Steinn Guðjónsson hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við danska meistaraliðið AG Köbenhavn. Þetta var tilkynnt fyrir stundu í tengslum við heimaleik AG við Sönderjyske í dönsku úrvalsdeildinni.
Þetta þýðir að hann er samningsbundinn AG fram á mitt næsta ár.
Snorri Steinn er núna á sinni annarri leiktíð með AG-liðinu. Hann hefur orðið bikarmeistari með liðinu tvö síðustu árin og varð meistari á síðasta ári. Snorri Steinn er annar Íslendingurinn sem framlengir samning sinn við AG-liðið en nokkru fyrir áramót skrifaði Arnór Atlason undir framlengingu á sínum samningi við liðið. Þess er nú beðið að Ólafur Stefánsson ákveði hvort hann haldi áfram hjá AG næsta árið en honum stendur það til boða. Fjórði Íslendingurinn í herbúðum AG, Guðjón Valur Sigurðsson, flytur sig um set í sumar. Hann fer til Kiel í Þýskalandi.
Rætt verður við Snorra Stein í íþróttablaði Morgunblaðsins sem kemur út í fyrramálið, um nýja samninginn við AG og framtíðina með íslenska landsliðinu.






