Snorri Steinn sá rautt

Snorri Steinn Guðjónsson. stækka

Snorri Steinn Guðjónsson. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Snorra Steini Guðjónssyni var sýnt rauða spjaldið þegar fáeinar sekúndur voru eftir af viðureign AG og SönderjyskE í Bröndby-höllinni í Kaupmannahöfn í kvöld þegar AG marði eins marks sigur, 29:28, og heldur eftir sem áður öruggri forystu í dönsku úrvalsdeildinni.

Dómararnir sýndu Snorra rauða spjaldið þegar nokkrar sekúndur voru til leiksloka fyrir að tefja leikinn að þeirra mati. Leikmenn SönderjyskE fengu boltann en tíminn var of naumur fyrir þá til að jafna metin. Þetta er ekki fyrsta sinn á leiktíðinni sem leikmenn SönderjyskE reynast meistaraliðinu erfiðir á keppnistímabili því fyrr í vetur gerðu þeir sér lítið fyrir og skelltu AG á heimavelli.

AG var með þriggja marka forskot í hálfleik, 15:12, en allur síðari hálfleik var jafn og aldrei munaði meira en einu til tveimur mörkum á liðunum, AG þó ævinlega í vil.

Ólafur Stefánsson skoraði þrjú mörk og var markahæstur Íslendinganna hjá AG. Snorri Steinn skoraði í tvígang en Arnór Atlason og Guðjón Valur Sigurðsson náðu ekki að skora, eftir því sem næst verður komist. Guðjón Valur lét lita hár sitt kolsvart fyrir leikinn eftir að hann tapaði veðmáli við félaga sína á æfingu í gær.

Þá töpuðu Guðmundur Árni Ólafsson og samherjar í Bjerringbro/Silkeborg fyrir Århus Håndbold, 29:26, á útivelli. Guðmundur Árni skoraði eitt mark í leiknum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is