Tapaði veðmáli og leikur með „ananasinn“
„Ég tapaði veðmáli á æfingu og verð að taka afleiðingunum,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson, handknattleiksmaður hjá danska meistaraliðinu AG en hann var klipptur í morgun og verður að leika með „hanakamb“ eða „ananasgreiðslu“ eins og hann kallar greiðsluna í næstu tveimur leikjum AG liðsins.
Snorri sagði í samtali við mbl.is hann hafi veðjað gegn því að samherja hans, Mads Larsen, tækist að skora tvö mörk í upphitun í fótbolta á æfingu í gær. Larsen er ekki öflugasti fótboltamaðurinn í hópi leikmanna AG-liðsins að sögn Snorra. Hvað sem því líður þá tókst Larsen að skora í tvígang. Þar með varð Snorri að súpa seyðið að og fór í klippingu í morgun eins og sést á meðfylgjandi mynd af heimasíðu AG.
„Ég verða að spila með þessa hárgreiðslu í næstu tveimur heimaleikjum, gegn SönderjyskE í kvöld og á móti Montpellier í Meistaradeildinni um helgina. Ég kalla þetta ananasinn. Robbi Gunn var með þessa greiðslu í tvö ár,“ sagði Snorri léttur í bragði að vanda.
Samherji Snorra úr AG-liðinu tapaði einnig veðmáli á æfingunni í gær og verður sá að láta lita hár sitt svart og vera með í næstu tveimur leikjum. Dagblaðið Ekstra Bladet greinir frá að þar sé um að ræða Guðjón Val Sigurðsson.






