Ari Magnús: Svona er að fórna sér en var ekki komið nóg?

Ari Magnús Þorgeirsson. stækka

Ari Magnús Þorgeirsson. mbl.is/Ómar

„Ég er búinn að æfa þetta mjög lengi, geri alltaf svona á æfingum,“  sagði Ari Magnús Þorgeirsson, sem átti sviðið í Kaplakrika fyrir hlé þegar FH vann Aftureldingu 26:25 í 15. umferð N1-deildar karla í kvöld.

Ari Magnús var markahæstur FH-inga fyrir hlé með fimm mörk, þar af komu þrjú eftir hraðaupphlaup, eitt úr horni og eitt með skoti að utan.  Til að tryggja sér athyglina stal hann boltanum á lokamínútunni af Mosfellingi með því að kasta sér fram og slá boltann úr höndum hans, rétt eins og Alexander Petersson gerði við mikinn fögnuð á sínum tíma.

Við þetta atriði rann Ari Magnús útí horn og sneri sig á fæti svo hann var studdur í burtu og kom ekki meira við sögu.  „Það gekk upp núna en kostaði smá tognun, svona er að fórna sér en var ekki komið nóg: fimm mörk og stela boltanum einu sinni?“  sagði kappinn léttur í bragði eftir leikinn.

Ari Magnús er 25 ára og spilaði með yngri flokkum á Selfossi en flutti svo í Hafnarfjörðinn.  Hann hætti þó snemma í handbolta og fór í fótboltann en sneri aftur í handboltann þegar komið var að meistaraflokki.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is