Besta og skemmtilegasta

Snorri Steinn Guðjónsson. stækka

Snorri Steinn Guðjónsson. www.agkbh.dk

Handknattleiksmaðurinn Snorri Steinn Guðjónsson hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við danska meistaraliðið AG Köbenhavn.

„Ég er ánægður með að þetta er í höfn, allri óvissu hefur verið eytt og nú get ég einbeitt mér að spilamennsku með AG,“ sagði Snorri Steinn í samtali við Morgunblaðið í gær en tilkynnt var um undirskrift hans samhliða heimaleik AG við SönderjyskE í dönsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. AG vann leikinn naumlega, 29:28, og Snorra Steini var sýnt rauða spjaldið á síðustu sekúndum viðureignarinnar fyrir að tefja. Áður hafði hann skorað tvö mörk. AG er í efsta sæti dönsku úrvalsdeildarinnar sjö stigum á undan Kolding og Bjerringbro Silkeborg sem eru næst á eftir þegar sex umferðir eru óleiknar.

Snorri Steinn hefur verið í herbúðum AG síðustu tvö árin og í tvígang orðið bikarmeistari auk þess að verða danskur meistari á síðasta ári. „AG er besta og jafnframt skemmtilegasta lið sem ég hef leikið með á ferlinum. Það er léttur og skemmtilegur andi innan leikmannahópsins auk þess sem árangurinn hefur heldur ekki spillt fyrir,“ segir Snorri Steinn sem lék um tveggja ára skeið með GOG í Danmörku en hefur einnig spilað með Rhein-Neckar Löwen, GWD Minden og Grosswallstadt auk Vals hér heima áður en atvinnumannsferillinn hófst fyrir nærri áratug.

„Fjölskyldunni líkar einnig vel lífið í Kaupmannahöfn þannig að það var alltaf efst á blaði hjá mér að vera áfram hjá AG væri þess nokkur kostur,“ segir Snorri Steinn, sem býr ásamt eiginkonu og tveimur ungum börnum í hinni gömlu höfuðborg Íslendinga.

Sjá lengra viðtal við Snorra Stein í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is