Fer Snorri Steinn í leikbann?

Snorri Steinn Guðjónsson, AG stækka

Snorri Steinn Guðjónsson, AG Gísli Baldur Gíslason

Mikið hefur verið rætt og ritað um rauða spjaldið sem Snorri Steinn Guðjónsson fékk undir lok leik AG Köbenhavn og SönderjyskE í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik fyrir að tefja leikinn. Almennt er talið að rétt hafi verið að sýna Snorra rauða spjaldið fyrir að tefja leikinn þegar fáeinar sekúndur voru eftir. Ekki er útilokað að hann verði úrskurðaður í leikbann.

Hvort svo fer eða ekki kemur í ljós eftir fund aganefndar danska handknattleikssambandsins um miðja næstu viku.

Þegar fáeinar sekúndur voru eftir af leik AG og SönderjyskE í gær og AG var í sókn var dæmt sóknarbrot á liðið. Snorri Steinn var þá með boltann. Í stað þess að leggja boltann niður strax hélt hann á boltanum og vann þannig nokkrar sekúndur en stutt var til leiksloka og AG var marki yfir, 29:28. Dómararnir stöðvuðu tímann þegar ljóst var að Snorri hikaði við að leggja frá sér boltann. Í framhaldinu var Snorra vísað af leikvelli með rautt spjald, sem enginn efast um að hafi verið rétt, ekki einu sinni Snorri sjálfur, eins og fram kemur í viðtali við hann á DR.

Hins vegar náði hann að vinna tíma fyrir lið sitt þannig að þegar Sönderjyske fékk boltann eftir brottreksturinn var svo lítill tími eftir að liðinu vannst ekki tími til þess að hefja sókn og jafna metin.

Morten Henriksen, þjálfari SönderjyskE, segist vel skilja ákvörðun Snorra og sjálfur hefði hann eflaust beðið leikmann sinn að fara eins að hefði lið hans verið í sömu stöðu.

„Þetta er óíþróttamannsleg framkoma og ósanngjörn gagnvart okkur. Þarna er á ferðinni sú helsta hugsun íþróttamanns að vinna leik þótt hann gangi alveg út á jaðarinn. En það meiddist enginn og það skiptir mestu máli,“ segir Henriksen í samtali við TV2.

Bent Nygaard, helsti handknattleikssérfræðingur TV2 og þrautreyndur þjálfari, segir að bregðast verði við uppákomum af þessu tagi með því að breyta reglum á þann hátt að fimm sekúndum verði bætt við leiktímann þegar leikmenn taka sig til og tefja viljandi þegar svo stutt er eftir af leiknum. Ekki sé næg refsing að vísa manni af velli.

Dómarar leiksins skiluðu skýrslu um atvikið. Það verður tekið fyrir hjá aganefnd danska handknattleikssambandsins á þriðjudag eða miðvikudag. Þar á bæ vildu menn ekkert tjá sig efnislega um málið í dag.

Skeggrætt verður um atvikið í íþróttaþættinum HåndboldDebatten á TV2 í Danmörku í kvöld.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is