Grimmd Mosfellinga dugði ekki gegn FH en tæpt var það
FH-ingar gáfu ekkert eftir þegar þeir fengu Aftureldingu í heimsókn í Hafnarfjörðinn í kvöld og unnu 26:25 þrátt fyrir mikla baráttu gestana.
Eftir jafna byrjun náði FH undirtökunum en þegar Hafnfirðingar slógu aðeins af stukku Mosfellingar til og minnkuðu muninn í eitt mark í seinni hálfleik. Það dugði samt ekki til.
Hjá FH er Ólafur Gústafsson markahæstur með 8 og Ari Magnús Þorgeirsson með 5 en Daníel Freyr Andrésson varði 13 skot. Hjá Aftureldingu skoruðu Böðvar Páll Ásgeirsson og Hilmar Stefánsson sitthvor 7 mörkin en Davíð Svansson varði 16 skot.
Lið FH: Pálmar Pétursson, Daníel Freyr Andrésson, Sigurður Ágústsson, Andri Berg Haraldsson, Baldvin Þorsteinsson, Hjalti Þór Pálmason, Ólafur Gústafsson, Magnús Óli Magnússon, Örn Ingi Bjarkason, Þorkell Magnússon, Ari Magnús Þorgeirsson, Ísak Rafnsson, Ragnar Jóhannsson, Halldór Guðjónsson, Atli Rúnar Steinþórsson.
Lið Aftureldingar: Davíð Svansson, Hafþór Einarsson, Hilmar Stefánsson, Helgi Héðinsson, Hrafn Ingvarsson, Böðvar Páll Ásgeirsson, Aron Gylfason, Einar Héðinsson, Sverrir Hermannsson, Pétur Júníusson, Jóhann Jóhannsson, Jón Andri Helgason, Þorlákur Sigurjónsson, Daníel Jónsson.
60. mín. 26:25. Leik lokið.
59. mín. 25:24. Davíð varði sitt þriðja víti fyrir Aftureldingu en hinu meginn er Daníel líka farinn að verja. 50 sekúndur eftir og FH í sókn.
57. mín. 25:23. Mosfellingar orðnir of varkárir í sóknum sínum. Þjálfari þeirra tók leikhlé.
55. mín. 24:23. Gríðarleg barátta, harka og grimmd þar sem Mosfellingar eru mun öflugri. Munurinn eitt og tvö mörk en allt mögulegt.
48. mín. 21:20. Aftur Mosfellingur útaf. Fátt um mörk enda færri menn á vellinum.
46. mín. 20:19. FH einum fleirri í tvær mínútur eftir mistök í skiptingu gestanna. FH missir strax mann útaf líka.
45. mín. 20:19. Eitt mark. Mosfellingar mun ákveðnari en FH-ingar eru þó að reyna rífa sig í gang, gengur þó erfiðlega því vörn gestanna grípur í þá hvenær sem næst til þeirra. Davíð fer á kostum í markinu, hefur varið 12 skot, þar tvö víti. Og þá tók þjálfari FH leikhlé.
42. mín. 19:17. Fyrsta brottvísun hjá FH og vörn Mosfellinga varð enn grimmari, sem aftur skilaði tveimur mörkum en dómarar hafa tekið tvö mörk af Aftureldingu þegar þeir hafa dæmt og fljótt.
39. mín. 19:14. Davíð varði víti fyrir Aftureldingu. FH-ingar virkaði aðeins rólegri og Mosfellingar berjast frekar fyrir sínum hlut.
34. mín. 17:12. Daníel varið í þremur síðustu sóknum Mosfellinga.
33. mín. 17:12. Leikurinn fer frekar rólega af stað aftur.
30. mín. - hálfleikur. 16:10. Ekki svo mikill munur á liðinu en þó nægur, jókst þó ekki í lok fyrri hálfleik þegar Afturelding var manni færri. Ari hefur skorað 5 fyrir FH og Daníel varið 4 skot en hjá Aftureldingu er Hilmar með 5 og Davíð hefur varið 10 skot, þar af eitt víti.
26. mín. 14:9. Ari sýndi snilli þegar hann sló boltann frá leikmanni Aftureldingar í hraðaupphlaupi - svipað og Alexander Petterson gerði á sínum og menn spurðu: "Hver er hann? Hvaðan kom hann? og fleira í svipuðum dúr. Hinsvegar meiddist Ari við stökkið og haltrar á bak við varamannabekkinn.
25. mín. 13:9. Bættur varnarleikur FH skilaði sér fljótlega með snöggum sóknum og munurinn hefur vaxið aðeins þar sem Ari Magnús fer á kostum, skorað 5 mörk.
20. mín. 10:8. Böðvar Páll kominn inná og skoraði strax. Hinsvegar hefur vörn FH náð áttum og er mun betur á verði.
18. mín. 9:6. Engu líkara en Mosfellingar hafi lesið þessi skrif því meira bit er í sókninni og vörnin betur vakandi auk þess að Davíð hefur varið tvö skot.
15. mín. 9:5. Þjálfari Mosfelinga tók leikhlé og Hilmar skoraði í næstu sókn. Davíð í markinu bætti um betur og varði víti.
14. mín. 9:4. Smá sprettur hjá FH og munurinn fimm mörk en gestirnir ekki nógu ákveðnir í sínum aðgerðum. Þeir verða að halda vel á spöðunum til að vinna þetta upp.
10. mín. 5:4. Báðir markverðir var sitthvor tvö skotin. Mosfellingar klúðrað tveimur síðustu sóknum með því að stíga á línu. FH er með Ólaf, Örn Inga og Andra Berg fyrir utan, Ara og Baldvin í hornunum og Sigurð á línunni en Daníel í markinu. Afturelding byrjar með Jóhann, Hela og Sverri fyrir utan, Hilmar og Jón Andra í hornunum, Einar á línunni og Davíð í markinu.
5. mín. 3:2. FH skrefinu á undan og vörnin er hreyfanleg og föst fyrir.
2. mín. 1:1. Einar jafnar af línu.
1. mín. 1:0. Andri Berg brýtur ísinn fyrir FH.
1. mín. 0:0. Leikurinn hafinn og FH byrjar með boltann. Þjálfarar sögðu fyrir leikinn að liðin tefldu fram sínu besta liði, engin meiðsli og slíkt nema hvað Mosfellingurinn knái Þrándur Gíslason er enn frá vegna veikinda.






