Guðfinnur: Ekki búnir að sætta okkur við fall

Guðfinnur Kristmannsson er ekki af baki dottinn þó Grótta sé aðeins með eitt stig í ... stækka

Guðfinnur Kristmannsson er ekki af baki dottinn þó Grótta sé aðeins með eitt stig í deildinni. mbl.is

mbl.is Ólafur Már Þórisson, omt@mbl.is

Guðfinnur Kristmannsson, þjálfari Gróttu, var svekktur eftir fjögurra marka tap fyrir Akureyri 29:25 í N1-deild karla í handknattleik í kvöld. Þegar um 11 mínútur voru eftir var staðan jöfn 22:22 og meðbyr með Gróttu. Eins og hendi væri veifað skoruðu gestirnir fögur mörk í röð og gerðu með því út um leikinn.

„Við tókum því miður ekki þennan möguleika með í reikninginn, við slökuðum á og gerðum okkur seka um mistök. Fram að því var vörnin búin að vera glimrandi góð en mistök í sókninni gerðu okkur erfitt fyrir. Við héldum samt alltaf í vonina,“ sagði Guðfinnur.

Í stöðunni 22:24 fékk Jóhann Gísli Jóhannesson að líta rauða spjaldið eftir að hafa fengið tvær mínútur fyrir brot og svo aðrar tvær fyrir að henda brúsa inn á völlinn í mótmælaskyni. „Það fer með möguleika okkar en auðvitað má svo deila um hvort brotið hafi verðskuldað tvær mínútur eða ekki.“ Spurður hvað honum hafi fundist sagði Guðfinnur: „Ég ætla ekki að segja eitt einasta orð um það. Seinni tvær mínúturnar voru þó verðskuldaðar og hann veit það sjálfur. Þetta gerði þó útslagið.“

Guðfinnur var óánægður með hversu fáir áhorfendur sáu sér fært að mæta á leikinn. „Ég skora á fólk að líta á þetta unga og efnilega lið. Ég held að við séum með eitt yngsta liðið á landinu í þessu.“

Spurður hvort hann eða leikmennirnir væru búnir að sætta sig við fall úr deildinni sagði Guðfinnur: „Nei alls ekki, við í hópnum stefnum að því að vinna stig og sjá hvert það skilar okkur. Það eru enn tólf stig í pottinum og meðan það er einhver möguleiki höldum við áfram.“

Grótta er á botninum með aðeins eitt stig eftir 15 leiki.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is