Hansen: Hættið að væla yfir Snorra

Mikkel Hansen skorar í úrslitaleik EM í Serbíu. stækka

Mikkel Hansen skorar í úrslitaleik EM í Serbíu. Reuters

Mikkel Hansen, stórskyttan í liði AG Köbenhavn og danska landsliðinu í handknattleik, skorar á menn að hætta öllu væli yfir broti Snorra Steins Guðjónssonar á lokasekúndunum í leik liðsins við SönderjyskE í dönsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi.

Eins og áður hefur komið fram, missti AG boltann þegar nokkrar sekúndur voru eftir, vegna sóknarbrots, en liðið var þá marki yfir. Snorri lét boltann ekki af hendi strax, tafði leikinn um dýrmætar sekúndur fyrir lið sitt, og fékk rauða spjaldið fyrir það.

Snorri hefur verið mikið  gagnrýndur í dönskum fjölmiðlum í dag og brot hans kallað siðlaust. Hansen skrifaði hins vegar eftirfarandi á Twitter rétt í þessu, til varnar félaga sínum:

„Hættið öllu þessu væli um ólöglegan leik Snorra í gær. Hann gerði nákvæmlega það sem allir klókir leikmenn myndu gera í þessari stöðu,“ skrifaði Hansen.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is