Haukar áfram á toppnum

Róbert Aron Hostert, Fram og Matthías Árni Ingimarsson, Haukum. stækka

Róbert Aron Hostert, Fram og Matthías Árni Ingimarsson, Haukum. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Haukar halda efsta sæti úrvalsdeildar karla, N1-deildinni, eftir sigur á Fram, 23:17, í íþróttahúsinu í Safamýri í kvöld. Sterk vörn og frábær markvarsla ásamt hraðaupphlaupum í síðari hálfleik lögðu grunninn að sigri Hafnarfjarðarliðsins.

Fylgst var með leiknum í beinni textalýsingu á mbl.is.

Mörk Fram: Arnar Birkir Hálfdánsson 3/1, Ægir Hrafn Jónsson 3, Einar Rafn Eiðsson 2, Jón Arnar Jónsson 2, Garðar B. Sigurjónsson 2, Róbert Aron Hostert 2, Matthías Daðason 2.
Varin skot: Magnús G. Erlendsson 17 (þaraf 2 til mótherja).
Mörk Hauka: Freyr Brynjarsson 6, Gylfi Gylfason 4/1, Tjörvi Þorgeirsson 3, Þórður Rafn Guðmundsson 3, Stefán Rafn Sigurmannsson 3, Einar Pétur Pétursson 1, Árni Steinn Steinþórsson 1, Sveinn Þorgeirsson 1, Heimir Óli Heimisson 1.
Varin skot: Aron Rafn Eðvarðsson 16/1 (þaraf 1 til mótherja).

Lið Fram: Magnús G. Erlendsson, Sebastian Alexandersson - Sigfús Páll Sigfússon, Matthías Daðason, Halldór J. Sigfússon, Stefán B. Stefánsson, Jóhann Karl Reynisson, Einar Rafn Eiðsson, Sigurður Eggertsson, Ægir Hrafn Jónsson, Jón Arnar Jónsson, Garðar B. Sigurjónsson, Róbert Aron Hostert, Hákon Stefánsson, Arnar Birkir Hálfdánsson.  Ingimundur Ingimundarson er ekki leikmannahópi Fram í kvöld. Hann hitaði upp með liðinu en leikur ekki vegna meiðsla í nára sem hrjáð hafa hann undanfarnar vikur.
Þjálfari: Einar Jónsson

Lið Hauka: Aron Rafn Eðvarðsson, Birkir Ívar Guðmundsson - Tjörvi Þorgeirsson, Freyr Brynjarsson, Einar Pétur Pétursson, Þórður Rafn Guðmundsson, Brynjólfur S. Brynjólfsson, Árni Steinn Steinþórsson, Jónatan Ingi Jónsson, Nemanja Malovic, Sveinn Þorgeirsson, Heimir Óli Heimisson, Stefán Rafn Sigurmannsson, Gylfi Gylfason, Matthías Árni Ingimarsson.
Þjálfari: Aron Kristjánsson.

Dómarar eru Arnar Sigurjónsson og Svavar Pétursson.

55. Haukar hafa öll ráð í hendi sér. Vörnin er frábær og markvarslan framúrskarandi. Fram-liðið á engin svör. Staðan er 20:14, fyrir Hauka sem skoruðu fimm mörk í röð og breyttu stöðunni úr 13:15, í 13:20.

51. Framarar taka leikhlé, þeir eru þremur mörkum undir, 13:16. Freyr var að skora fyrir Hauka eftir hraðaupphlaup en Haukaliðið er manni færra. Markverðirnir, Aron Rafn og Magnús, hafa farið á kostum. Aron heldur uppteknum hætti frá viðureigninni við FH í bikarnum á sunnudaginn.

45. Róast hefur yfir leiknum á nýjan leik. Haukar hafa tveggja marka forskot, 14:12.

42. Síðustu tvær mínútur hafa leikmönnum ekki haldið nein bönd og mörkin komið hreinelga á færibandi. Haukar eru þremur mörkum yfir, 14:11.

40. Haukar hafa tveggja marka forskot, 11:9. Markverðir beggja liða hafa farið á kostum. Mistökum í sóknarleik beggja liða hefur heldur fækkað í síðari hálfleik.

33. Arnar Birkir braut ísinn í byrjuna síðari hálfleiks fyrir Fram, skoraði með þrumuskoti, staðan, 9:7, fyrir Hauka.

31. Ekki byrjaði síðari hálfleikur betur en sá síðari endaði. Aron Rafn greip laust skot Róberts Arons. Staðan enn, 9:6, Haukum í hag. Gylfi skaut framhjá marki Fram hinum megin vallarins úr opnu færi.

30. Fyrri hálfleik er lokið í Safamýri. Haukar hafa þriggja marka forskot, 9:6. Lélegri leik hef ég ekki séð á leiktíðinni. Mistök leikmanna er óteljandi.
Ægir Hrafn og Róbert Aron hafa skorað tvö mörk hvor fyrir Fram. Magnús hefur varið 10 skot í markinu og hefur verið lang besti leikmaður liðsins.
Gylfi hefur skorað þrjú mörk fyrir Hauka, Freyr og Tjörvi tvö hvor. Aron Rafn hefur varið fimm skot.

29. Haukar taka leikhlé, staðan er 6:8, fyrir þá en Tjörvi skoraði fyrir um einni mínútu fyrsta mark leiksins í rúmar sjö mínútur. Dæmalaust klaufalegur fyrri hálfleikur er senn að baki.

25. Engu hefur verið líkara síðustu mínútur en leikmönnum beggja liða sé illa við boltann. Þeir hafa gert hver mistökin á fætur öðrum eða þá kastað boltanum eitthvað út í loftið. Staðan enn, 6:7, fyrir Hauka. Aron Rafn var að verja glæsilega vítakast frá Stefáni Baldvini.

20. Gylfi var að koma Haukum yfir með marki eftir hraðaupphlaup, 6:7. Bæði lið hafa verið mistæk í sóknarleik sínum, segja má að óvenjumikið hafi verið um sóknarmistök til þessa.

15. Fram hefur jafnað metin, 5:5, og er í sókn.

10. Fram tekur leikhlé. Haukar eru þremur mörkum yfir, 5:2. Leikmenn Fram hafa verið afar mistækir í sóknarleiknum Fram til þess, skotin verið óvönduð og sendingar slakað og oft ratað annað en á samherja.

5. Haukar yfir, 3:1. Tjörvi skoraði þriðja mark Hauka en Arnar Birkir varð fyrstu Framara til þess að koma skoti framhjá Aroni Rafni í marki Hauka.

4. Gylfi Gylfason og Heimir Óli Heimisson hafa komið Haukum í 0:2. Róbert Aron Hostert er utan vallar í tvær mínútur fyrir brot á Frey Brynjarssyni.

Fram situr í fjórða sæti deildarinnar fyrir leikinn með 17 stig að loknum 14 leikjum. Haukar tróna hinsvegar á toppnum með 20 stig.

Liðin hafa leitt saman hesta sína í tvígang í deildinni á þessari leiktíð áður en kemur að leiknum í kvöld. Fram vann, 23:22, á heimavelli Hauka 2. október. Hlutverkin snerust við á heimavelli Fram 24. nóvember. Þá höfðu Haukar betur, 27:25.

Fram og Haukar mætast á nýjan leik í úrslitum Eimskipsbikarsins í Laugardalshöll annan laugardag.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is