Hörð barátta en við erum bjartsýnir
Bjarni Fritzson, leikmaðurinn reyndi í liði Akureyrar, þótti standa sig best í umferðum 8-14 í N1-deild karla í handbolta en viðurkenningar til þeirra sem sköruðu fram úr í 2. umferð deildarinnar voru veittar í gær.
„Það er alltaf gaman að fá viðurkenningu en hvort ég hafi endilega verið bestur skal ég ekki segja til um,“ sagði Bjarni við Morgunblaðið eftir að hafa tekið á móti viðurkenningu sinni en hann var að sjálfsögðu valinn í lið umferða 8-14 sem hægri hornamaður.
„Við höfum verið að sækja í okkur veðrið eftir að hafa lent í miklum erfiðleikum í byrjun tímabilsins. Við misstum marga menn í meiðsli en þá fengu yngri menn tækifæri. Þeir stóðu sig vel og með því hefur breiddin aukist í liðinu. Liðið hefur spilað ágætlega og þegar við verðum komnir í gott stand sem gerist fljótlega tel ég liðið okkar betra en í fyrra,“ sagði Bjarni, sem er markahæstur í N1-deildinni en hann er 113 mörk í 14 leikjum Akureyringa í deildinni.
Bjarni er 32 ára gamall og kom til Akureyrarliðsins fyrir tímabilið í fyrra frá FH og koma hans til liðsins virtist hafa góð áhrif. Akureyringar urðu deildarmeistarar og komust í úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitilinn þar sem þeir töpuðu fyrir FH. Norðanmenn unnu aðeins einn af sex fyrstu leikjum sínum í deildinni á þessu tímabili en hafa smátt og smátt verið að sækja í sig veðrið og eftir gott gengi í 2. umferðinni (umferðir 8-14) eru þeir með 16 stig í fimmta sæti deildarinnar, stigi á eftir Fram.






