Oddur: Vorum á rassinum í byrjun
Ólafur Már Þórisson, omt@mbl.isOddur Gretarsson sýndi úr hverju hann er gerður þegar Akureyri vann Gróttu 29:25 í N1-deild karla í handknattleik í kvöld. Oddur skoraði 11 mörk í öllum regnbogans litum og var án vafa maður leiksins. Oddur var ánægður með sigurinn þótt spilamennskan hafi ekki verið eins góð og oft áður hjá Akureyri.
„Við vorum á rassinum til að byrja með og í raun var einhver deyfð yfir þessum leik. Það voru svona 26 manns í húsinu þannig að maður þurfti sjálfur að rífa sig í gang. Við vorum lengi að því og náðum því í raun eiginlega aldrei fyrir utan tvo til þrjá kafla sem gerðu eiginlega gæfumuninn,“ sagði Oddur og sagðist vara hafa upplifað eins lélega stemningu frá því hann var í 2. flokki.
„Mér finnst það skrítið þar sem Grótta er með ungt og efnilegt lið ásamt því að þetta er stórt félag og með góða yngri flokka.“
Hann sagði stigin tvö mikilvæg þótt margt þyrfti að laga. Spurður hvort það hafi haft einhver áhrif að liðin voru að mætast í annað skiptið á einni viku sagði Oddur: „Það á ekki að skipta máli. Það gæti þó vel verið en þeir eru að sjálfsögðu líka að spila aftur við okkur. Þannig að það ætti ekki að hafa áhrif.“






