Spennandi leikir í kvöld

Ólafur Víðir Ólafsson er hér að skora fyrir HK gegn Val í síðustu viku. Liðin ... stækka

Ólafur Víðir Ólafsson er hér að skora fyrir HK gegn Val í síðustu viku. Liðin mætast í Digranesi aftur í kvöld. Ómar Óskarsson

Tveimur umferðum  af þremur er lokið í N1-deild karla í handknattleik og í kvöld hefst þriðja umferðin. Eins og undanfarin ár fara fjögur efstu liðin eftir deildarkeppnina í úrslitakeppni um Íslandsmeistaratitilinn.

Það stefnir í hörkuspennandi keppni um það hvaða fjögur lið komast í úrslitakeppnina en sex lið eru að berjast um að komast í hana. Haukar eru í efsta sætinu með 20 stig en á eftir koma FH og HK með 19 stig, Fram 17, Akureyri 16  og Valur 13. Tvö neðstu liðin eru Afturelding sem hefur 7 stig og Grótta bíður enn eftir fyrsta sigrinum en liðið hefur aðeins eitt stig.

Leikir kvöldsins eru:
18.30 Grótta - Akureyri
19.30 FH - Afturelding
19.30 Fram - Haukar
19.30 HK - Valur

Íslandsmeistarar FH hafa lagt Aftureldingu í báðum leikjunum í vetur, 29:26 og 24:20.

Haukar og Fram hafa unnið sinn leikinn hvort. Fram hafði betur á heimavelli, 23:22, en Haukar fögnuðu sigri á Ásvöllum, 27:25. Um aðra helgi eigast liðin svo við í úrslitaleik bikarkeppninnar.

Akureyri hefur unnið Gróttumenn tvisvar og það með miklum mun. 28:19 á Nesinu í síðustu viku og 39:24, í fyrstu umferðinni á Akureyri.

HK og Valur hafa skipst á að vinna í vetur. Valur hafði betur í fyrri leiknum að Hlíðarenda, 31:27, en HK svaraði fyrir sig þegar liðin mættust í Digranesi í síðustu viku. HK hafði betur, 28:26.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is