Valsmenn náðu fram hefndum

Ólafur Bjarki Ragnarsson hefur verið einn besti leikmaður deildarinnar á leiktíðinni. stækka

Ólafur Bjarki Ragnarsson hefur verið einn besti leikmaður deildarinnar á leiktíðinni. mbl.is/Ómar

Valsmenn unnu í kvöld góðan sigur á HK í Digranesinu í 15. umferð N1-deildar karla í handknattleik, 28:24. Leikurinn var jafn og spennandi nær allan tímann en Valsmenn komust fram úr á lokakaflanum. Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.

HK vann viðureign liðanna á sama stað fyrir viku með tveimur mörkum og því má segja að Valur hafi náð fram hefndum.

Mörk HK: Ólafur Bjarki Ragnarsson 9, Bjarki Már Elísson 6/4, Ólafur Víðir Ólafsson 3, Tandri Már Konráðsson 2, Atli Ævar Ingólfsson 2, Sigurjón Friðbjörn Björnsson 1, Vilhelm Gauti Bergsveinsson 1.
Varin skot: Björn Ingi Friðþjófsson 11 (þar af 2 til mótherja), Arnór Freyr Stefánsson 2.

Mörk Vals: Valdimar Fannar Þórsson 6, Orri Freyr Gíslason 5, Finnur Ingi Stefánsson 5, Sturla Ásgeirsson 5, Atli Már Báruson 3, Magnús Einarsosn 2, Sveinn Aron Sveinsson 1, Anton Rúnarsson 1.
Varin skot: Hlynur Morthens 21 (þar af 8 til mótherja).

60. Leik lokið. HK náði aldrei að ógna Valsmönnum almennilega í lokin. Fjögurra marka sigur gestanna staðreynd, 28:24.

58. Staðan er 26:23 í vil. Bjarki Már Elísson reyndi sirkusmarkssendingu sem mistókst og skaut svo í stöng í næstu sókn. Dýrkeypt fyrir HK-inga.

57. Staðan er 25:23 Val í vil. HK var að taka leikhlé. Valdimar Fannar Þórsson hefur farið mikinn síðustu mínúturnar og var að skora glæsilegt mark, hans sjötta í leiknum.

54. Staðan er 24:23 Val í vil. HK er með boltann og það stefnir í blóðuga lokabaráttu. Arnór Freyr Stefánsson er kominn inn á í markið hjá HK en Björn Ingi hafði varið 11 skot. Hlynur er kominn með 19 varin fyrir Valsmenn.

48. Staðan er 21:20 Val í vil. Bjarki Már Elísson var að skora sitt fimmta mark þó HK-ingar væru manni færri eftir að Vilhelm Gauti fékk þeirra fyrstu brottvísun. Valur skoraði fjögur mörk í röð og komst í 20:17 en sá munur hélst skammt.

42. Staðan er jöfn, 17:17. Það verður stress á lokamínútunum sýnist mér. Liðin skiptast á að skora og munurinn hefur ekki orðið meiri en eitt mark í seinni hálfleiknum.

36. Staðan er jöfn, 14:14. Sveinn Aron Sveinsson var að fá aðra brottvísun Valsmanna og spurning hvernig heimamenn nýta sér það.

30. Hálfleikur. Staðan er 13:12 Val í vil. Valur náði alls að halda marki sínu hreinu í rúmar tíu mínútur áður en Ólafur Víðir braut ísinn fyrir HK með sínu fyrsta marki og minnkaði muninn í 12:11 þegar tvær mínútur voru eftir. Liðin skoruðu svo sitt markið hvort áður en flautað var til hálfleiks. Ólafur Bjarki er markahæstur HK með 5 mörk en hjá Val er Finnur Ingi með 4 mörk. Hlynur Morthens er kominn með 14 varin skot fyrir Val, þar af reyndar sjö til mótherja, en Björn Ingi Friðþjófsson sex hjá HK.

24. Staðan er jöfn, 10:10. Valsvörnin er grimm þessa stundina og Hlynur Morthens er að vanda í formi í markinu og þegar búinn að verja 10 skot. Gunnar Harðarson er kominn inn á við hlið Sigfúsar. HK hefur ekki skorað síðustu sjö mínútur eða svo og þess vegna hafa þjálfarar liðsins nú tekið leikhlé.

18. Staðan er 10:8 HK í vil. Ólafur Víðir er kominn inn á í sóknarleik HK og Sigfús Sigurðsson í vörnina hjá Val sem var að missa Orra Frey Gíslason af velli í tvær mínútur. Ólafur Bjarki er hins vegar í aðalhlutverki í leiknum eins og fyrir viku og var að skora sitt fimmta mark.

12. Staðan er 7:6 HK í vil. Hraðaupphlaupin hafa verið að skila sínu hjá Valsmönnum sem skoruðu þrjú mörk í röð og komust í 6:5 en mörk frá Ólafi Bjarka og Vilhelm Gauta hafa komið heimamönnum yfir á ný.

6. HK var að komast yfir, 3:2, með marki Ólafs Bjarka. Vilhelm Gauti Bergsveinsson stýrir sóknarleik HK-inga og Ólafur Bjarki er hægra megin við hann en Tandri vinstra megin. Hjá Valsmönnum er Anton leikstjórnandi með Valdimar Fannar, sem hefur gert bæði mörk Vals, og Magnús sinn hvorum megin við sig.

1. Leikurinn er hafinn. Leikmannahóparnir eru þeir sömu og í síðustu viku nema hvað skyttan Atli Karl Bachmann er ekki með HK eftir að hafa nefbrotnað á æfingu í gær. Nefbrotið ku hafa verið í boði Garðars Svanssonar sem er aftur á móti í leikmannahópi HK í kvöld.

0. Liðin mættust hér í Digranesinu fyrir viku og þá vann HK tveggja marka sigur í jöfnum og spennandi leik þar sem Ólafur Bjarki Ragnarsson skoraði 10 mörk fyrir HK. Sigfús Sigurðsson fékk rautt spjald undir lok þess leiks en ekkert leikbann og er því með Valsmönnum í kvöld.

Lið HK: Björn Ingi Friðþjófsson, Arnór Freyr Stefánsson, Bjarki Már Gunnarsson, Björn Þórsson Björnsson, Bjarki Már Elísson, Tandri Már Konráðsson, Leó Snær Pétursson, Ólafur Bjarki Ragnarsson, Atli Ævar Ingólfsson, Garðar Svansson, Ólafur Víðir Ólafsson, Sigurbjörn Friðbjörn Björnsson, Vilhelm Gauti Bergsveinsson, Kristján Orri Víðisson.

Lið Vals: Ingvar Guðmundsson, Hlynur Morthens, Sigfús Sigurðsson, Orri Freyr Gíslason, Finnur Ingi Stefánsson, Arnar Daði Arnarsson, Atli Már Báruson, Einar Örn Guðmundsson, Gunnar Harðarson, Sturla Ásgeirsson, Magnús Einarsson, Sveinn Aron Sveinsson, Valdimar Fannar Þórsson, Anton Rúnarsson.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is