Áhorfendamet þegar Víkingur vann ÍR

Mynd 1 af 16
Óttar Filipp Pétursson reynir að komast framhjá varnarmönnum ÍR í kvöld. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Spennan var nær óbærileg á lokamínútum leiks Víkings og ÍR í 1. deild karla í handknattleik í kvöld. ÍR var tveimur mörkum yfir þegar um 5 mínútur voru til leiksloka en Víkingar gerðu þrjú síðustu mörkin og unnu 30:29 en staðan í hálfleik var 16:15. Hjálmar Þór Arnarsson skoraði sigurmarkið fyrir Víking þegar tvær til þrjár sekúndur voru eftir af leiknum og allt varð vitlaust í Víkinni.

Það voru 700 manns sem mættu í Víkina í kvöld og er það áhorfendamet í 1. deild karla en fyrra metið var sett í Vestmannaeyjum þegar 650 manns sáu leik ÍBV og Víkings á síðasta tímabili.

ÍR-ingar voru ekkert alltof sáttir við sumar ákvarðanir dómaranna, undir lok leiks sérstaklega, samkvæmt tíðindamanni mbl.is á leiknum. Það breytir því þó ekki að Víkingur er nú aðeins tveimur stigum á eftir ÍR og getur eftir kvöldið ráðið örlögum sínum. Ætli þeir sér sigur þurfa þeir að vinna ÍR í næstsíðustu umferðinni og fá ekki færri stig en piltarnir úr Breiðholtinu í hinum fimm leikjunum.

Aðeins efsta liðið í deildinni fer beint upp í úrvalsdeild en næstu þrjú lið ásamt næstneðsta liðinu í úrvalsdeildinni fara svo í úrslitakeppni um annað laust sæti.

Markahæstir Víkinga í kvöld voru þeir Gestur Jónsson og Jóhann Reynir Gunnlaugsson, báðir með sex mörk. Þrír aðrir leikmenn skoruðu svo fimm mörk. Hjá ÍR voru það Davíð Georgsson, Guðni Már Kristinsson og Daníel Ingi Guðmundsson sem skoruðu mest eða sex mörk.

Þá vann Selfoss nokkuð öruggan sigur á Fjölni, 28:19, eftir jafnan fyrri hálfleik þar sem staðan var 10:7 að honum loknum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is