Davíð: Vantar aðeins meiri sigurvegara í okkur

Leikmenn Aftureldingar: Þrándur Gíslason Roth, liggur, Davíð Svansson t.v. og Sverrir Hermannsson t.h. stækka

Leikmenn Aftureldingar: Þrándur Gíslason Roth, liggur, Davíð Svansson t.v. og Sverrir Hermannsson t.h. mbl.is/Árni Sæberg

„Ég hef ekki spáð sérstaklega í vítin, ekki frekar en leikinn yfirhöfuð, og mér fannst þetta ekkert svakalega góð víti, ekki bestu sem ég hef séð, en það verður ekki tekið af mér að verja þrjú víti,“ sagði Davíð Svansson, markvörður Aftureldingar, spekingslega eftir eins marks tap fyrir FH, 26:25, í Kaplakrika í kvöld en hann er ánægður með uppskeruna.

„Númer eitt er að við lukum alls ekki nógu vel sóknum okkar í lokin, skutum á markið af löngu færi og markmaður FH þurfti að bíða lengi eftir boltanum og labbaði í hornin, sem gengur ekki. Við verðum að vera þolinmóðari og þrautseigari í lokin.

Það kemur alltaf lélegur kafli hjá okkur en það var óvenjulegt að hann kom nú á fyrstu tíu mínútunum. Þá var hann hins vegar búinn og það sem eftir er leiks er ásættanlegt og fyrstu tuttugu mínútur seinni hálfleiks voru stórkostlegar, ekkert hægt að kvarta yfir þeim en það þurfti að fá þessi síðustu skot inn í markið. Það vantaði aðeins meiri sigurvegara í okkur,“ sagði Davíð við mbl.is.

„Þetta var tæpt,“ sagði Einar Andri Einarsson, þjálfari FH, eftir 26:25-sigur á Aftureldingu í hörkuleik í Hafnarfirði í kvöld en það skipti sköpum þegar hans menn héldu haus síðasta sprettinn. Með sigrinum tókst FH að halda 2. sæti deildarinnar.

„Eftir frábæran fyrri hálfleik var seinni hálfleikur virkilega erfiður og mikil vonbrigði þegar vörnin gaf eftir en Afturelding spilaði vel og ég spái því að þeir eigi eftir að taka nokkur stig í síðustu umferðinni,“ bætti Einar Andri við.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is