Íþróttir
|
Handbolti
| mbl
| 17.2.2012
| 12:26
| Uppfært
12:43
Finnur Ingi: Gæti talið í restina
Finnur Ingi Stefánsson, hornamaður Valsara, var kátur eftir sigurinn á HK í gærkvöldi. Hann þakkaði sigurinn öflugum varnarleik og góðri markvörslu en segir hana hafa vantað fyrir viku þegar HK hafði betur.
Finnur Ingi kveðst ánægður með spilamennsku Valsliðsins eftir hléð vegna Evrópumótsins og jólahalds og segir sigurinn í gær hafa verið lífsnauðsynlegan upp á möguleikann á að komast í fjögurra liða úrslitakeppnina í vor. Nú sé Valur kominn með yfirhöndina gegn HK í innbyrðis viðureignum, sem gæti haft sitt að segja í lok deildarkeppninnar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






