Hlakka til að fá Guðjón

Alfreð Gíslason. stækka

Alfreð Gíslason. mbl.is

„Það verður gaman að fá að vinna aftur með Guðjóni Val og hann á eftir að falla vel inn í okkar lið og leikstíl. Guðjón er frábær íþróttamaður í alla staði og það eru ekki margir 25 ára leikmenn í heiminum sem standast honum snúninginn. Ég hlakka til að fá hann í liðið,“ sagði Alfreð Gíslason, þjálfari þýska stórliðsins Kiel, í samtali við Morgunblaðið í gær en á dögunum var það gert opinbert að Guðjón Valur mun ganga í raðir Kiel í sumar þegar samningur hans við danska meistaraliðið AG Köbenhavn rennur út. Guðjón lék undir stjórn Alfreðs hjá þýska liðinu Gummersbach í tvö ár og einnig með íslenska landsliðinu.

Nánar er rætt við Alfreð í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag en Kiel er með fullt hús stiga eftir tuttugu leiki í deildinni.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is