Íþróttir
|
Handbolti
| mbl
| 17.2.2012
| 9:53
| Uppfært
10:11
Ísland í 5. sæti í Evrópu
Íslenska karlalandsliðið í handknattleik er í 5. sæti á styrkleikalista evrópska handknattleikssambandsins, EHF, en nýr listi hefur verið gefinn út eftir Evrópumótið í Serbíu í síðasta mánuði.
Íslendingar höfnuðu í 10. sæti á Evrópumótinu í Serbíu eftir að hafa lent í þriðja sæti á Evrópumótinu í Austurríki fyrir tveimur árum.
Evrópumeistarar Dana tróna á toppi listans og í næstu sætum á eftir koma Króatar og Frakkar.
Fimmtán efstu þjóðirnar á styrkleikalistanum eru:
1. Danmörk
2. Króatía
3. Frakkland
4. Spánn
5. Ísland
6. Pólland
7. Serbía
8. Þýskaland
9. Ungverjaland
10. Noregur
11. Svíþjóð
12. Slóvenía
13. Makedónía
14. Tékkland
15. Austurríki
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






