Íþróttir
|
Handbolti
| mbl
| 17.2.2012
| 22:36
| Uppfært
23:35
Kári með fjögur í sigri Wetzlar
Kári Kristján Kristjánsson skoraði 4 af mörkum Wetzlar þegar liðið bar sigurorð af Hüttenberg á útivelli, 26:22, í þýsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld.
Wetzlar kom sér þægilega fyrir á stigatöflunni með sigrinum en liðið hefur nú 18 stig og er í 9. sæti deildarinnar en Hüttenberg er í næst neðsta sætinu með 7 stig.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






