Íþróttir
|
Handbolti
| mbl
| 17.2.2012
| 12:24
| Uppfært
12:52
Ólafur Bjarki: Erfitt að skjóta framhjá Fúsa
Ólafur Bjarki Ragnarsson stórskytta HK-inga segist hafa fundið fyrir andleysi hjá liðinu þegar það tapaði fyrir Valsmönnum í gærkvöld í N1-deildinni. Hann segir hugsanlegt að tapið dramatíska í bikarnum gegn Fram á mánudag hafi setið í mönnum.
Sóknarleikur HK-inga var ekki sérstakur að mati Ólafs Bjarka sem sjálfur skoraði þó níu mörk í leiknum, mörg með glæsilegum skotum. Hann segir þó erfitt að skjóta framhjá Sigfúsi Sigurðssyni sem átti góðan leik í vörn Vals.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






