Reynir: Grátlega nærri þessu
„Við vorum grátlega nálægt þessu,“ sagði Reynir Þór Reynisson þjálfari Aftureldingar, sem þurfti að fara tómhentur heim í Mosfellsbæinn þrátt fyrir hörkuleik en 26:25 tap fyrir FH í Kaplakrika þegar 15. umferð N1-deildar karla í handknattleik fór fram í kvöld.
„Það er tvennt í þessu, annað að við komum til baka og unnum seinni hálfleikinn með fimm mörkum og vorum nálægt því að fá eitthvað úr þessum leik, en ég hefði viljað byrja leikinn betur. Við byrjuðum með 3-2-1 vörn en mér fannst menn ekki alveg tilbúnir þegar leikurinn byrjaði svo við skiptum í flata vörn. Í seinni hálfleik fórum við aftur í þessa framliggjandi vörn auk þess að skipuleggja okkur aðeins betur þegar menn gengu grimmari fram,“ sagði Reynir við mbl.is.
Afturelding hefur unnið þrjá leiki í vetur og gert eitt jafntefli, gegn Fram í síðasta leik, og nú munaði litlu gegn FH. „Mér finnst við í mikilli framför, þetta er flott hjá okkur og ég sé mun á liðinu leik frá leik, hugarfarið er betra og þetta er allt í rétta átt,“ sagði Reynir Þór Reynisson.






