Snorri Steinn í tveggja leikja bann
Snorri Steinn Guðjónsson, leikmaður danska meistaraliðsins AG Köbenhavn, var í dag úrskurðaður í tveggja leikja bann.
Snorri fékk að líta rauða spjaldið undir lok leiks AG Köbenhavn og Sønderjyske í fyrrakvöld. Þegar fáeinar sekúndur voru eftir af leiknum og AG var í sókn var dæmt sóknarbrot á liðið. Snorri Steinn var þá með boltann. Í stað þess að leggja boltann niður strax hélt hann á boltanum og vann þannig nokkrar sekúndur en stutt var til leiksloka og AG var marki yfir, 29:28. Dómararnir stöðvuðu tímann þegar ljóst var að Snorri hikaði við að leggja frá sér boltann. Í framhaldinu var Snorra vísað af leikvelli með rautt spjald.
Ekki er mögulegt fyrir AG Köbenhavn að áfrýja úrskurðinum en Snorri kemur til með að missa af leikjunum á móti Skive og Bjerringbro-Silkeborg.






