Sólveig fór á kostum í sigri Stjörnunnar

Sólveig Lára Kjærnested skoraði hvorki fleiri né færri en 15 mörk í sigri Stjörnunnar á ... stækka

Sólveig Lára Kjærnested skoraði hvorki fleiri né færri en 15 mörk í sigri Stjörnunnar á FH í kvöld. Ómar Óskarsson

Sólveig Lára Kjærnested fór hreinlega á kostum þegar Stjarnan vann FH 38:24 í N1-deild kvenna í handknattleik í kvöld. Sólveig skoraði 15 mörk og var skiljanlega langmarkahæst heimastúlkna. Næst Sólveigu kom Hanna Guðrún Stefánsdóttir með 8 mörk og þær Hildur Harðardóttir og Sandra Sigurjónsdóttir skoruðu fjögur.

Hjá gestunum úr Hafnarfirði var Ingibjörg Pálmadóttir markahæst með 6 en Steinunn Snorradóttir kom næst með 5. Þá skoraði Birna Íris Helgadóttir þrjú mörk fyrir FH sem eftir erfiða byrjun náði aldrei að brúa bilið. Staðan í hálfleik var 21:9 en ágætur seinni hálfleikur gestanna rétti þó þeirra hlut.

Stjarnan er eftir leikinn með 12 stig eins og ÍBV í 4. - 5. sæti deildarinnar en ÍBV á þó leik til góða. Þessi lið ásamt HK, Val og Fram virðast vera svo gott sem búin að tryggja sæti sitt í úrslitakeppninni þangað sem sex lið fara. Baráttan um 6. sætið ætlar að verða á milli Hauka, KA/Þór og Gróttu þegar sex umferðir eru eftir. FH situr á botninum með þrjú stig en á þó enn möguleika en liðið verður þá að safna fleiri stigum og byrja á því sem fyrst.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is