Íþróttir
|
Handbolti
| mbl
| 18.2.2012
| 15:25
| Uppfært
16:09
Arnar Jón með 14 í sigri á ÍBV
Arnar Jón Agnarsson skoraði rúman helming marka Stjörnunnar, eða 14 talsins, þegar liðið vann góðan sigur á ÍBV, 37:30, í 1. deild karla í handknattleik í Garðabænum í dag.
Þar með vænkaðist hagur Selfyssinga sem eru aðeins tveimur stigum á eftir ÍBV. ÍBV er í 4. sæti með 14 stig og Stjarnan í 3. sæti með 18 stig, en liðin í 2.-4. sæti fara í umspil ásamt næstneðsta liðinu úr N1-deildinni um sæti í þeirri deild.
Eyþór Magnússon var næstmarkahæstur hjá Stjörnunni með 7 mörk en Sigurður Bragason skoraði 6 mörk fyrir ÍBV.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






