Íþróttir
|
Handbolti
| mbl
| 18.2.2012
| 8:33
Arnór og Björgvin í stórum hlutverkum
Arnór Þór Gunnarsson og Björgvin Þór Hólmgeirsson voru í stórum hlutverkum hjá liðum sínum, Bittenfeld og Rheinland, þegar þau mættust í þýsku B-deildinni í handknattleik í gærkvöld.
Bittenfeld vann þar góðan sigur, 25:24, og náði fimm marka forskoti skömmu fyrir leikslok, sem Björgvini og félögum hans tókst ekki að vinna upp þó litlu hefði munað.
Arnór skoraði 6 mörk fyrir Bittenfeld en Árni Þór Sigtryggsson var ekki á meðal markaskorara liðsins. Björgvin skoraði 7 mörk fyrir Rheinland, fimm þeirra á síðustu 12 mínútum leiksins. Íslendingarnir voru markahæstu menn sinna liða.
Bittenfeld er í 9. sæti og Rheinland í 12. sæti af 20 liðum í deildinni en þau eru samt aðeins fjórum til sex stigum á eftir toppliðunum í hnífjafnri keppni.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






