Björgvin lék stórt hlutverk hjá Magdeburg

Björgvin Páll Gústavsson. stækka

Björgvin Páll Gústavsson. mbl.is/Golli

Þýska handknattleiksliðið Magdeburg komst naumlega í 8-liða úrslit EHF-bikarsins í handknattleik í kvöld þegar það tapaði, 22:21, fyrir Nexe Nasice í Króatíu en skoraði þó markið sem réð úrslitum á lokasekúndu leiksins.

Magdeburg vann fyrri leikinn á sínum heimavelli, 33:31, og því var ljóst að liðið ætti erfiða ferð fyrir höndum til Króatíu. Björgvin Páll Gústavsson lék mjög vel í marki þýska liðsins og hélt því á floti í fyrri hálfleik með því að verja 12 skot. Samt var staðan í hálfleik 10:6, Nexe í hag, en hvorugt liðið skoraði mark síðustu sjö mínútur fyrri hálfleiks.

Staðan var síðan 21:16 fyrir Nexe þegar aðeins fjórar mínútur voru eftir og allt benti til þess að Björgvin og  félagar væru á leið útúr keppninni. Þeir skoruðu hinsvegar fimm mörk gegn einu á lokakaflanum og minnkuðu muninn i 22:20 þegar 35 sekúndur voru eftir. Björgvin kom Magdeburg til bjargar með því að verja síðasta skot Króatanna, Magdeburg náði hraðaupphlaupi og Yves Grafenhorst skoraði 21. mark liðsins úr hraðaupphlaupi. Það réð úrslitum og Magdeburg vann 54:53 samanlagt en hefði annars fallið út á jöfnu, á færri mörkum á útivelli.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is