Einkaþjálfun í júlí að skila sér

Aron Rafn Eðvarðsson stækka

Aron Rafn Eðvarðsson mbl.is/hag

Aron Rafn Eðvarðsson, markvörðurinn hávaxni í liði Hauka, er leikmaður 15. umferðar N1-deildarinnar í handknattleik að mati Morgunblaðsins. Aron Rafn var öflugur á milli stanganna í sigri Hauka gegn Fram í fyrrakvöld.

Hann fékk aðeins á sig 17 mörk og þó svo að markvarsla hans í leiknum hafi ekki verið eins stórbrotin og í bikarleiknum á móti FH um síðustu helgi varði hann mark sitt jafnt og þétt allan tímann.

Aron er 22 ára gamall Hafnfirðingur, sem hefur leikið allan sinn feril með Haukum. Þessi 2,05 metra hái Haukamaður hefur svo sannarlega sýnt og sannað að hann er efni í frábæran markvörð. Hann hefur þegar fengið eldskírnina með íslenska landsliðinu og var með því á nýafstöðnu Evrópumóti í Serbíu og haldi Aron vel á spilunum verður hann orðinn atvinnumaður áður en langt um líður.

Komnir á rétta sporið á ný

„Það er búið að ganga vel hjá mér í síðustu leikjum og ég þakka auðvitað frábærri vörn það að ég hef fundið mig vel í markinu. Við erum komnir á rétta sporið á ný eftir tvo tapleiki í röð og nú höfum við náð að byggja upp gott sjálfstraust fyrir bikarúrslitaleikinn um næstu helgi,“ sagði Aron Rafn við Morgunblaðið en Haukarnir mæta Frömurum í úrslitaleik bikarkeppninnar næsta laugardag.

Sjá nánar viðtal við Aron Rafn í íþróttablaði Morgunblaðsins og þar er birt úrvalslið blaðsins í 15. umferð deildarinnar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is